Um okkur

ÖFA heimasíðan er rétt að komast af stað. Hér kemur inn nýtt efni reglulega.
Í rúm 25 ár hef ég unnið í tölvugeiranum, ég hef sinnt öllu frá notendaþjónustu, uppsetningum á tölvum og tækjum og upp í kerfisstjórn í fjármálageiranum…. og ekki síst hef ég aðstoðað fjölskylduna og foreldra í tæknimálum.
Síðustu ár hefur áhugi minn færst frá almennum rekstri tölvukerfa og yfir í það hvernig best er að tryggja öryggi tölvukerfa, fyrirbyggja veikleika í þeim og hvernig bregðast eigi við ef ráðist er á þau. Ég hef haldið námskeið hjá fyrirtækjum, sem hafa það markmið að auka öryggisvitund starfsmanna og kenna þeim að þekkja og draga úr áhættuþáttum í netnotkun. Þetta er efni sem ég hef mikinn áhuga á og því hef ég bæði aukið við sérfræðiþekkingu mína á þessu sviði og einnig lagt mig fram við að miðla af þeirri þekkingu.
Ég hef lokið fjölda námskeiða með áherslu á öryggi og veikleika í tölvu- og netkerfum. Má þar nefna MCSA, Advanced Windows Security Course, Certified Security Architect (CSAR+I), Certified Security Engineer (CSEN) og Certified Ethical Hacker svo eitthvað sé nefnt.
Sveinbjörn Þormar
Sími: 857-8015
